Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 2/157.
Þingskjal 268 — 156. mál.
Þingsályktun
um fullgildingu uppfærðs fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu, samnings um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Malasíu og fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Kósovós.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd uppfærðan fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Úkraínu sem undirritaður var í Kyjív 8. apríl 2025, samning um efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Malasíu sem undirritaður var í Tromsö 23. júní 2025 og fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Kósovós sem undirritaður var í Davos 22. janúar 2025.
Samþykkt á Alþingi 3. nóvember 2025.