Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 370 — 113. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti. Nefndinni barst ein umsögn auk minnisblaðs og upplýsinga frá dómsmálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993. Breytingarnar lúta annars vegar að því að lögfest verði heimild fyrir kirkjugarða til að innheimta gjald fyrir geymslu líka í líkhúsi og hins vegar að kirkjugarðsstjórn verði heimilt að taka frá grafarstæði lengur en til 50 ára þegar eftir því er leitað og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.
Umfjöllun nefndarinnar.
Frumvarpið var áður lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá allsherjar- og menntamálanefnd til 2. umræðu með áliti meiri hluta nefndarinnar 13. júní 2025 ( þskj. 718, 253. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu fyrir þinglok. Líkt og fram kemur í greinargerð er frumvarpið nú endurflutt án breytinga. Nefndin hefur haft til hliðsjónar þau gögn sem hafa borist um málið auk þeirra umsagna sem liggja fyrir frá 156. löggjafarþingi og eru aðgengilegar undir málinu á vef Alþingis. Til viðbótar við þá umfjöllun sem málið hefur nú fengið vísar meiri hlutinn til fyrri umfjöllunar og þeirra áherslna sem fram koma í áðurnefndu áliti frá 156. löggjafarþingi.
Meiri hlutinn áréttar þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum og greinargerð með frumvarpinu þess efnis að tímabært sé að fara í heildarendurskoðun á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, sem og að endurskoða samkomulag ríkis og kirkjugarðaráðs um framlag úr ríkissjóði til starfsemi kirkjugarða frá árinu 2005. Innan þeirrar endurskoðunar verði m.a. lagt á það mat hvort aðrar leiðir séu færar hvað varðar rekstrarvanda líkhúsa kirkjugarðanna.
Meiri hlutinn telur jafnframt mikilvægt að taka til heildstæðrar skoðunar ábendingar í umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem varða tilvik þar sem andvirði eigna dánarbús dugir ekki fyrir kostnaði vegna geymslu líks, útfarar eða líkbrennslu og enginn eftirlifandi lögerfingi er til staðar. Þá vísar meiri hlutinn til þess að við fyrirliggjandi frumvarp liggur fyrir breytingartillaga á þskj. 133 sem varðar heimild til dreifingar ösku. Meiri hlutinn telur tillöguna ekki samræmast efni eða markmiði frumvarpsins, sem varðar einkum rekstur líkhúsa, en telur ástæðu til að taka til nánari skoðunar hvort tilefni sé til að rýmka heimildir á grundvelli laganna til dreifingar ösku. Meiri hlutinn telur tímabært og beinir því til ráðherra að endurskoða lögin heildstætt svo að þau taki mið af þróun samfélagsins og endurspegli þær þjóðfélagsbreytingar sem orðið hafa undanfarin ár og áratugi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 18. nóvember 2025.
| Víðir Reynisson, form. |
María Rut Kristinsdóttir, frsm. |
Grímur Grímsson. | |
| Guðmundur Ari Sigurjónsson. | Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | ||