Ferill 291. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 401  —  291. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um stöðugleikareglu.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Telur ráðherra, í ljósi þess að útgjöld vaxa meira milli áranna 2025 og 2026 en þau gerðu milli 2024 og 2025, að stöðugleikaregla gæti óbreytt stuðlað að útgjaldavexti fremur en þjónað tilganginum um að útgjöld vaxi ekki of mikið milli ára?
     2.      Nú þegar annmarkar hafa litið dagsins ljós í fyrsta skipti sem stöðugleikaregla er notuð, hyggst ráðherra koma fram með tillögu að úrbótum á stöðugleikareglu svo að hún virki betur og stuðli jafnvel að því að dregið sé úr útgjöldum, að hvata til skattahækkana sé eytt og lán greidd hraðar niður?


Munnlegt svar óskast.