Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 481 — 114. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 (skammtímaleiga, gagnaöflun og rekstrarleyfi).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Fyrirtækjum í hótel- og gistiþjónustu, Heimaleigu ehf., Samtökum ferðaþjónustunnar og Viðskiptaráði Íslands.
Nefndinni bárust tíu umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem snúa að leyfisveitingum vegna sölu á heimagistingu í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007.
Umfjöllun nefndarinnar.
Endurflutt þingmál frá 156. löggjafarþingi.
Málið er endurflutt en það var til umfjöllunar í atvinnuveganefnd á 156. löggjafarþingi. Frumvarpið var afgreitt til 2. umræðu 24. júní 2025 með áliti meiri hluta nefndarinnar (þskj. 805, 279. mál) en hlaut ekki lokaafgreiðslu við þinglok. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er það lagt fram óbreytt, þó með tveimur tæknilegum breytingum sem meiri hlutinn lagði til í áliti sínu á fyrra löggjafarþingi. Meiri hlutinn vísar í umfjöllun og áherslur sem fram koma í áðurnefndu áliti frá því löggjafarþingi auk eftirfarandi atriða.
Tekjumark skráningarskyldrar heimagistingar.
Nefndin fjallaði um tekjumark skráningarskyldrar heimagistingar skv. 3. gr. laganna, en viðmiðið er að finna í 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, og er nú tvær milljónir króna. Tengingin við virðisaukaskattslög var lögð til í breytingartillögu atvinnuveganefndar við þriðju umræðu 457. máls á 145. löggjafarþingi og sagði framsögumaður málsins við það tilefni að breytingin væri lögð til svo að upphæðin myndi taka mið af verðlagshækkunum, þá þyrfti ekki að breyta upphæðinni með sérstakri lagabreytingu árlega. Tveggja milljóna króna viðmið 3. tölul. 4. gr. laga um virðisaukaskatt hefur haldist óbreytt frá árinu 2016, en hækkun á verðlagi frá þeim tíma hefur verið umtalsverð, eða rúm 50%. Beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins nú að kannað verði hvort tilefni sé til þess að uppfæra fjárhæðina í takt við verðlagsþróun.
Aukið svigrúm sveitarfélaga.
Nefndin fjallaði um heimild sveitarfélaga til aukins svigrúms þegar kemur að heimildum til einstaklinga til að leigja út aðra eign sína en lögheimili innan þéttbýlis til skamms tíma. Er það mat meiri hlutans að mikilvægt sé að fram fari mat á því hvort unnt sé að færa ákvörðunarvald hvað þetta varðar til sveitarfélaga, að vissum skilyrðum uppfylltum, án þess þó að um sérstaka leyfisveitingu stofnunar væri að ræða. Leggur meiri hlutinn því til að kannað verði hvort unnt sé að koma við hlutlægum viðmiðum sem kveði á um við hvaða aðstæður sveitarfélag geti heimilað heimagistingu í fleiri en einni eign innan þéttbýlis, t.d. út frá stöðu á fasteignamarkaði, hlutfalli íbúða í sölumeðferð, þrýstingi á leigumarkað og leiguverði og verðlagsþróun. Beinir meiri hlutinn því til ráðherra að fýsileiki slíkrar útfærslu verði kannaður og eftir atvikum lagðar til viðeigandi breytingar á lögum.
Meiri hlutinn leggur til tvær breytingar sem eru tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. A-liður 1. gr. orðist svo: Í stað orðsins „Rekstrarleyfisskyld“ í 2. málsl. kemur: Ótímabundin, rekstrarleyfisskyld.
2. Í stað orðsins „einstaka“ í 4. gr. komi: einstökum.
Alþingi, 4. desember 2025.
| Sigurjón Þórðarson, form. |
Eiríkur Björn Björgvinsson, frsm. |
Eydís Ásbjörnsdóttir. |
| Ingvar Þóroddsson. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. | Lilja Rafney Magnúsdóttir. |