Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 496 — 335. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um fyrningu og heimtur krafna vegna námslána eftir gjaldþrot.
Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.
1. Hversu margir einstaklingar með námslánaskuldir voru úrskurðaðir gjaldþrota frá ársbyrjun 2010 til og með 25. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
2. Hverjar hafa heimtur krafna vegna námslána verið hjá einstaklingum sem voru úrskurðaðir gjaldþrota á fyrrgreindu tímabili, sundurliðaðar eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir og fjöldi námslána.
3. Hvert er umfang fyrndra krafna vegna námslána á hendur einstaklingum sem voru úrskurðaðir gjaldþrota á fyrrgreindu tímabili, sundurliðað eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir og fjöldi námslána.
4. Hversu margir einstaklingar með námslánaskuldir hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
5. Hverjar hafa heimtur krafna vegna námslána verið hjá einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðaðar eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir, hlutfall af heildarfjárhæðum og fjöldi námslána.
Skriflegt svar óskast.