Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 528 — 354. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um fjármuni til loftslagsmála.
Frá Karli Gauta Hjaltasyni.
1. Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
2. Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir: a) skattstyrkjum, b) aðgerðum í samgöngum, c) aðgerðum í landbúnaði, d) öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
4. Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
Skriflegt svar óskast.