Ferill 355. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 529  —  355. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um fjármuni til loftslagsmála.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
     2.      Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir:
                  a.      skattstyrkjum,
                  b.      aðgerðum í samgöngum,
                  c.      aðgerðum í landbúnaði,
                  d.      öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
     3.      Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
     4.      Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.


Skriflegt svar óskast.