Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 646  —  387. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um strætisvagna frá kínverska framleiðandanum Yutong.

Frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.


     1.      Hversu margir strætisvagnar frá kínverska framleiðandanum Yutong eru í eigu opinberra aðila eða í notkun hjá þeim, til að mynda hjá Strætó bs.?
     2.      Hafa stjórnvöld farið að dæmi stjórnvalda í nágrannaríkjum og brugðist við fregnum af þeim eiginleika nefndra strætisvagna að framleiðandi geti haft áhrif á virkni einstakra vagna með rafrænum hætti? Ef svo er, hvernig hafa stjórnvöld brugðist við? Ef svo er ekki, hvers vegna ekki?


Skriflegt svar óskast.