Ferill 395. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 662 — 395. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um niðurstöður og þátttöku sveitarfélaga í lestrarskimunum, gögn um lestrarfærni og mat á árangri íhlutunar.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hverjar eru niðurstöður lesferils, samræmdra skimunar- og stöðuprófa Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem ætlað er að meta grunnþætti læsis, svo sem lesfimi, lesskilning, ritun, orðaforða og málskilning, sundurliðaðar eftir sveitarfélögum og kyni, fyrir vor og haust 2020, 2021, 2022, 2023, 2024 og 2025, þar á meðal hlutfall nemenda sem hafa náð fyrsta, öðru og þriðja viðmiði lestrarfærni á þessu tímabili?
2. Hversu mörg sveitarfélög hafa tekið þátt í lestrarskimunum lesferils á síðustu sex árum og hvernig hefur þátttakan þróast á tímabilinu?
3. Í hversu mörgum lestrarskimunum lesferils hefur Vestmannaeyjabær tekið þátt frá árinu 2020 og hverjar eru niðurstöðurnar þaðan í samanburði við sveitarfélög á landsvísu?
4. Á hvaða samanburðarhæfu gögnum byggir ráðherra þá afstöðu að lestrarárangur í Vestmannaeyjum sé fordæmisgefandi fyrir önnur sveitarfélög? Að hvaða marki liggja fyrir samanburðarhæf gögn í Vestmannaeyjum um lestrarfærni, svo sem við landsmeðaltal eða önnur sveitarfélög?
5. Hvaða skilyrði þurfa að vera uppfyllt til að ráðherra meti íhlutunarverkefni í lestri árangursríkt og yfirfæranlegt á landsvísu og hvaða hlutverki gegnir þátttaka í samræmdum skimunum lesferils í slíku mati?
Skriflegt svar óskast.