Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 703 — 238. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um brottfall laga um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007.
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti, Landssambandi eldri borgara, Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, Félagi talmeinafræðinga á Íslandi, Félagi heyrnarfræðinga, Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, Mannréttindastofnun Íslands og Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.
Nefndinni bárust átta umsagnir auk minnisblaðs frá heilbrigðisráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að fella brott lög um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007, og að leggja þannig niður Heyrnar- og talmeinastöð í núverandi mynd. Þess í stað verði þjónustan veitt á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu, með það að leiðarljósi að tryggja áfram þá þjónustu sem Heyrnar- og talmeinastöð hefur veitt um land allt. Með frumvarpinu er lagt til að störf allra starfsmanna Heyrnar- og talmeinastöðvar, nema forstjóra, verði flutt til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem yfirtaki gildandi ráðningarsamninga.
Umfjöllun nefndarinnar.
Í umsögnum sem nefndinni bárust um málið voru umsagnaraðilar margir hlynntir því að fella brott lög um Heyrnar- og talmeinastöð. Komu þó einnig fram ýmis sjónarmið og áhyggjur af tilfærslu þjónustunnar frá Heyrnar- og talmeinastöð til þjónustueiningar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram sjónarmið um að tilfærslan mætti ekki leiða til lakari þjónustu við þá sem þurfa á henni að halda. Þá komu fram sjónarmið um að leggjast þyrfti í ítarlegri þarfagreiningu og að nýtt heildarskipulag heyrnar- og talmeinaþjónustu sé að fullu tilbúið áður en Heyrnar- og talmeinastöð er lögð niður. Þá komu enn fremur fram sjónarmið um að málaflokkurinn hafi ekki fengið nægt fjármagn og ítrekað mikilvægi þess að þjónustunni sé tryggð fjármögnun til framtíðar.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í júlí 2024 hafi heilbrigðisráðherra skipað starfshóp um stefnumótun í heyrnarþjónustu sem skilaði skýrslu með tillögum í febrúar 2025 um framtíð heyrnarþjónustu. Megintillaga hópsins hafi verið að sett yrði á fót landsdekkandi þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í stað Heyrnar- og talmeinastöðvar. Lagði hópurinn til að hin nýja þjónustueining tæki að mestu leyti við núverandi verkefnum stofnunarinnar sem yrði lögð niður samhliða brottfalli laga um Heyrnar- og talmeinastöð. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sinni grunnþjónustu og fræðslu en sérfræðiþjónusta fari að mestu fram á öðru stigi heilbrigðisþjónustu, þ.e. hjá sjálfstætt starfandi heyrnarfræðingum og hinni nýju landsdekkandi þverfaglegu þjónustueiningu innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Í greinargerð kemur enn fremur fram að markmiðið með brottfalli laganna sé að tryggja stjórnvöldum svigrúm til að skýra heildarskipulag heyrnar- og talmeinaþjónustu en þeim markmiðum verði ekki náð með því að gera breytingar á gildandi lögum og því þurfi að fella lögin brott í heild sinni. Þegar þjónustan er ekki lengur bundin með lögum við eina stofnun, og sömu reglur gildi um þjónustuna og um veitingu annarrar heilbrigðisþjónustu, opnist m.a. fyrir þann möguleika að nýta heilsugæslustöðvar um allt land til að veita hluta þjónustunnar, þá opnist fyrir teymisvinnu, t.d. með sálfræðingum heilsugæslustöðva sem geti komið að stuðningi sem oft sé þörf á. Heilbrigðisþjónustan verði veitt á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og um greiðsluþátttöku og styrki til hjálpartækja muni gilda lög um sjúkratryggingar, nr. 112/2008.
Meiri hlutinn telur rétt að Heyrnar- og talmeinastöð verði lögð niður og þar með að lög um Heyrnar- og talmeinastöð, nr. 42/2007, falli brott. Meiri hlutinn tekur fram að með frumvarpinu sé ekki verið að fella niður þjónustu eða draga úr heldur sé eingöngu verið að færa starfsemi, sem hingað til hafi verið veitt af sérstakri stofnun, Heyrnar- og talmeinastöð, til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til þess að nýta megi þekkingu og innviði heilsugæslunnar til að styrkja þjónustu við þá sem hafa heyrnar- og talmein. Meiri hlutinn telur mikilvægt að þjónustunni og málaflokknum sé tryggt nægilegt fjármagn til framtíðar og beinir því til heilbrigðisráðuneytisins að tryggja það.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að ráðuneytið fylgist vel með því hvernig þjónustan reynist með hinu breytta fyrirkomulagi. Telur meiri hlutinn brýnt að ráðuneytið gangi úr skugga um að gæði þjónustunnar minnki ekki við tilfærsluna, þjónusturof eigi sér ekki stað og að kapp verði lagt á að bæta þjónustuna enn frekar.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 2. febrúar 2026.
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, form. |
Kristján Þórður Snæbjarnarson, frsm. |
Grímur Grímsson. | |
| Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir. | Þóra Gunnlaug Briem. | ||