Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 722  —  426. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um ellilífeyri til erlendra ríkisborgara.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hversu hárri fjárhæð nam ellilífeyrir árin 2020–2025?
     2.      Hvernig skiptist ellilífeyririnn eftir kyni?
     3.      Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
     4.      Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
     5.      Hvernig skiptist ríkisfang beggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?


Skriflegt svar óskast.