Ferill 431. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 728 — 431. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um barnalífeyrisgreiðslur.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hver var árlegur heildarfjöldi þeirra sem fengu greiddan barnalífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni rétthafa?
2. Hver var árlegur heildarfjöldi barna sem Tryggingastofnun ríkisins greiddi barnalífeyri fyrir árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi barns?
3. Hver var árlegur heildarfjöldi samþykktra nýrra umsókna um barnalífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins árin 2010–2025, sundurliðað eftir upprunalandi og kyni rétthafa?
Skriflegt svar óskast.