Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 10/157.
Þingskjal 764 — 237. mál.
Þingsályktun
um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152.
Alþingi ályktar að eftirfarandi breytingar verði á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152:
1. Eftirtaldir liðir í A-lið 2. tölul. (Biðflokkur) færist í A-lið 1. tölul. (Orkunýtingarflokkur):
a. Suðurland, Skrokkalda, Skrokkölduvirkjun, R3126A,
b. Suðurland, Þjórsá, Holtavirkjun, R3130A.
2. Í stað orðsins „Urriðaholtsvirkjun“ í A-lið 2. tölul. (Biðflokkur) komi: Urriðafossvirkjun.
3. Við 3. tölul. (Verndarflokkur) bætist nýr stafliður, C-liður – Kort af verndarsvæðum, svohljóðandi:
a. Fljótshnjúksvirkjun – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
b. Hrafnabjargavirkjun A – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
c. Hrafnabjargavirkjun B – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
d. Hrafnabjargavirkjun C – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
e. Búlandsvirkjun – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
f. Markarfljótsvirkjun A og B – verndarsvæði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Samþykkt á Alþingi 17. febrúar 2026.