Ferill 452. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 771  —  452. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um skýrslur um matvælabirgðir og mælaborð um fæðuöryggi.

Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.


     1.      Eru tvær skýrslur sem kynntar voru á málþingi ráðherra 27. nóvember sl. um fæðuöryggi ritrýndar, þ.e. skýrsla um neyðarbirgðir fyrir íslenska matvælaframleiðslu 1 og skýrsla um tillögur að neyðarbirgðum matvæla á Íslandi 2 ?
     2.      Hvað stóð vinnsla skýrslnanna yfir lengi og hvernig var ferlið við að velja aðila í verkið?
     3.      Voru gerðir skriflegir samningar um verkin þar sem kveðið var á um eftirfylgni? Ef svo er, hvernig fór sú eftirfylgni fram?
     4.      Hver var heildarkostnaður við gerð skýrslnanna tveggja, sundurliðaður eftir skýrslum, hverjir fengu greitt, hve mikið og fyrir hvað?
     5.      Hve langan tíma tók að útbúa mælaborð um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi sem kynnt var á sama málþingi og hvernig var ferlið við að velja aðila í verkið?
     6.      Voru gerðir skriflegir samningar um gerð mælaborðsins þar sem kveðið var á um eftirfylgni? Ef svo er, hvernig fór sú eftirfylgni fram?
     7.      Hver var heildarkostnaður við gerð mælaborðsins, sundurliðaður eftir því hverjir fengu greitt, hve mikið og fyrir hvað?
     8.      Hvernig hyggst ráðuneytið nýta umrætt mælaborð og hverjir aðrir geta nýtt sér það?


Skriflegt svar óskast.

1    
www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/ATRN/Fylgiskjol-med-frettum/LBH%c3%8d_ney%c3%b0arbirg%c3%b0ir_matv%c3%a6laframlei%c3%b0sla.pdf

2    
www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/ATRN/Fylgiskjol-med-frettum/MNH%c3%8d_ney%c3%b0arbirgdir_matv%c3%a6la.pdf