Ferill 453. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 772 — 453. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um fjárframlög og ívilnanir til íþrótta- og æskulýðsstarfs og lýðheilsuverkefna.
Frá Huldu Bjarnadóttur.
1. Hversu stórt hlutfall fjárlaga fyrir árið 2026 rennur til íþrótta- og æskulýðsstarfs?
2. Hvaða skattafslættir og/eða -ívilnanir standa íþróttafélögum til boða í dag?
3. Hvaða aðgerðir hyggst ríkisstjórnin ráðast í vegna endurgreiðslu og/eða stuðnings við uppbyggingu mannvirkja til íþróttaiðkunar?
4. Standa endurgreiðslur og/eða styrkir lýðheilsuverkefnum til boða í dag? Ef ekki, hvers vegna?
5. Stendur til að setja reglugerð um þjóðarleikvanga í íþróttum? Ef ekki, hvers vegna?
Skriflegt svar óskast.