Ferill 490. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 820  —  490. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um fjárframlög og styrki til samtaka og stofnana.

Frá Ingibjörgu Davíðsdóttur.


     1.      Hver hafa reglubundin og óreglubundin fjárframlög eða styrkir utanríkisráðuneytisins til samtaka og stofnana, innlendra og erlendra, á árunum 2021 til febrúar 2026 verið? Svar óskast sundurliðað eftir árum, samtökum og stofnunum.
     2.      Eru allir styrkir eða fjárframlög auglýst til umsóknar og er umsóknar- og valferlið gegnsætt?
     3.      Eru gerðir samningar og er framvinduskýrslum skilað?
     4.      Hvernig er ferli, framkvæmd og eftirfylgni við framangreint?


Skriflegt svar óskast.