Ferill 491. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 821 — 491. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um endursendingar hælisleitenda.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hefur ráðherra, í samstarfi við önnur ráðuneyti, unnið að samningum um endursendingar hælisleitenda til erlendra ríkja sem hingað til hafa ekki viljað taka við ríkisborgurum sínum? Ef svo er ekki, hvers vegna?
2. Hefur verið leitað til hinna Norðurlandanna um aðgang að samningum þeirra við sömu ríki og/eða samstarf við þau þar að lútandi?
Skriflegt svar óskast.