Ferill 179. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 856 — 179. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004 (EES-reglur, móttaka úrgangs í höfnum).
(Eftir 2. umræðu, 3. mars)
1. gr.
a. 4. tölul. orðast svo: Farmleifar: Leifar hvers konar farms um borð, á þilfari eða í lestum eða tönkum, sem eftir verða að lokinni fermingu og affermingu, þ.m.t. umframmagn og leki í tengslum við fermingu eða affermingu, hvort sem þær eru þurrar eða blautar eða hluti af þvottavatni, að undanskildu farmryki, sem verður eftir á þilfari að lokinni hreinsun, eða ryki á ytra byrði skips.
b. Á eftir 25. tölul. kemur nýr töluliður, 26. tölul., svohljóðandi: Úrgangur fangaður af tilviljun: Úrgangur sem safnast í net við fiskveiðar.
c. 26. tölul., sem verður 27. tölul., orðast svo: Úrgangur frá skipum: Allur úrgangur, þ.m.t. farmleifar, sem fellur til við starfrækslu skips eða við lestun, losun og hreinsun og fellur undir gildissvið I., II., IV., V. og VI. viðauka við MARPOL-samninginn, auk úrgangs sem er fangaður af tilviljun.
2. gr.
Hafnarstjórn skal gera áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um útfærslu og uppbyggingu á móttökuaðstöðu í höfnum skv. 1.–3. mgr. Þá getur ráðherra kveðið á um í reglugerð að litlar hafnir séu undanskildar kröfu um gerð áætlunar um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.
3. gr.
4. gr.
a. Orðin „fiskiskipum, skemmtibátum sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega“ í 1. mgr. falla brott.
b. Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr.:
1. Í stað orðsins „má“ í 1. og 2. málsl. kemur: skal.
2. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig skal veita undanþágu frá greiðslu gjalda skv. 1. mgr. fyrir fiskiskip og skemmtibáta sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda.
5. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „reglugerð nr. 792/2004 um móttöku á úrgangi frá skipum“ í 3. mgr. kemur: reglugerð sem ráðherra setur.
b. 5. mgr. fellur brott.
6. gr.
Lög þessi fela í sér innleiðingu á 3., 4. og 5. tölul. 2. gr., 5., 8. og 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB, sem vísað er til í tölul. 56i í V. kafla XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2022 frá 10. júní 2022 auk innleiðingar tilskipunar 2005/35/EB um mengun sem á upptök sín um borð í skipum og innleiðingu viðurlaga við brotum sem vísað er til í tölul. 56v í V. kafla XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2009 frá 29. maí 2009.
7. gr.
8. gr.
a. Orðin „fiskiskipum, skemmtibátum sem ekki mega flytja fleiri en 12 farþega“ í 2. málsl. f-liðar 1. tölul. 2. mgr. 17. gr. laganna falla brott.
b. 1. mgr. 30. gr. laganna orðast svo:
Lög þessi fela í sér innleiðingu á 8. og 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB, sem vísað er til í tölul. 56i í V. kafla XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2022 frá 10. júní 2022.