Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
2. uppprentun.

Þingskjal 895  —  79. mál.
Leiðrétting.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um vegabréfsáritanir.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar (PawB, DagH, SHP, SGuðm, VíðR).


     1.      Í stað orðanna „laða erlenda ferðamenn til landsins samhliða“ í 2. mgr. 1. gr. komi: stuðla að.
     2.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað orðanna „Schengen“ og „Schengen-starfinu“ í 1. mgr. komi: Schengen-samstarfið; og: Schengen-samstarfinu.
                  b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra sem fer með mál er varða Schengen-samstarfið skipar stýrihóp um vegabréfsáritanir. Aðild að stýrihópnum eiga stjórnvöld sem annast framkvæmd laga þessara og önnur stjórnvöld sem koma að framkvæmd málaflokksins. Stýrihópurinn skal vinna að samhæfingu Schengen-samstarfsins er varðar vegabréfsáritanir og skila árlegri skýrslu til ráðherra.
     3.      Við 3. gr. bætist tvær nýjar orðskýringar í réttri stafrófsröð, svohljóðandi:
                  a.      Afturköllun: Þegar stjórnvald tekur að eigin frumkvæði aftur lögmæta ákvörðun sína um veitingu vegabréfsáritunar, sem þegar hefur verið birt, ef forsendur hafa breyst þannig að handhafi hennar uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar.
                  b.      Ógilding: Þegar stjórnvald ógildir að eigin frumkvæði lögmæta ákvörðun sína um útgáfu vegabréfsáritunar, sem þegar hefur verið birt, ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef ástæða er til að ætla að vegabréfsáritun hafi verið fengin með sviksamlegum hætti.
     4.      Í stað orðsins „ferðaheimildar“ í 5. mgr. 9. gr. komi: vegabréfsáritunar.
     5.      Við 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. bætist: og komuáritanir.
     6.      Við 13. gr.
                  a.      Í stað orðanna „og lögregluyfirvöld“ í 1. mgr. komi: lögregluyfirvöld og önnur stjórnvöld sem hafa hlutverki að gegna samkvæmt lögum þessum.
                  b.      Í stað orðanna „og sendiskrifstofum Íslands“ í 2. mgr. komi: sendiskrifstofum Íslands, lögregluyfirvöldum og öðrum aðilum sem hafa hlutverki að gegna samkvæmt lögum þessum.
                  c.      3. mgr. orðist svo:
                  Ráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands, lögregluyfirvöldum og öðrum stjórnvöldum sem hlutverki gegna samkvæmt lögum þessum er heimilt að miðla persónuupplýsingum, þar á meðal upplýsingum sem viðkvæmar geta talist, einkum lífkennaupplýsingum, vegna samráðs við önnur stjórnvöld í samræmi við ákvæði laga þessara og útlendingalaga. Jafnframt er þeim heimilt að safna og skiptast á upplýsingum um umsóknir útlendinga um vegabréfsáritanir við önnur stjórnvöld í þágu landamæraeftirlits, landamæraöryggis og greiningarstarfs.
     7.      Í stað orðsins „skulu“ í 1. og 2. mgr. 16. gr. komi: skal.
     8.      17. gr. orðist svo ásamt fyrirsögn:

Stjórnsýslukæra.

    Sætti aðili máls sig ekki við ákvörðun lögreglu eða ráðuneytisins um synjun umsóknar skv. 15. gr. eða ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar skv. 16. gr. getur hann með stjórnsýslukæru gert skriflega og rökstudda kröfu á íslensku til úrskurðarnefndar áritanamála innan 30 daga frá dagsetningu ákvörðunar til að fá hana fellda úr gildi eða til að fá henni breytt. Ákvarðanir verða einvörðungu endurskoðaðar á grundvelli málsgagna sem lágu fyrir þegar stjórnvaldsákvörðun var tekin.
    Úrskurður úrskurðarnefndar í slíku máli skal jafnan liggja fyrir innan 30 virkra daga frá því að beiðni var móttekin.
    Samhliða framlagningu stjórnsýslukæru ber að greiða málskotsgjald. Mál skal fellt niður án efnismeðferðar ef greiðsla berst ekki innan áskilins frests.
     9.      Við III. kafla bætist ný grein er verði 18. gr. sem orðist svo ásamt fyrirsögn:

Úrskurðarnefnd áritanamála.

    Úrskurðarnefnd áritanamála er sjálfstæð í störfum sínum og verður úrskurðum hennar samkvæmt lögum þessum ekki skotið til annarra stjórnvalda.
    Í úrskurðarnefnd áritanamála eiga sæti þrír menn sem skulu fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Ráðherra skipar þrjá nefndarmenn til þriggja ára í senn og skal einn þeirra vera formaður. Einn nefndarmanna skal skipaður að fenginni tilnefningu þess ráðherra sem fer með mál er varða Schengen-samstarfið. Heimilt er að skipa þrjá menn til vara. Kostnaður vegna úrskurðarnefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
    Formanni er heimilt að úrskurða einn í málum sem eru einföld úrlausnar og varða ekki verulega hagsmuni. Nefndin setur fullskipuð nánari reglur um hvenær heimildinni verður beitt.
     10.      Við 19. gr.
                  a.      Í stað orðanna „vegabréfsáritanir vegna“, orðanna „vegabréfsáritanir til“ og orðsins „áhættumat“ í 4. tölul. komi: vegabréfsáritana vegna; og vegabréfsáritana til; og: skilyrði áhættumats.
                  b.      8. tölul. orðist svo: Reglur um störf og skrifstofuhald úrskurðarnefndar áritanamála, svo sem um móttöku erinda og málsmeðferð, þ.m.t. að kærumál verði einvörðungu endurskoðuð á grundvelli málsgagna sem lágu fyrir þegar stjórnvaldsákvörðun var tekin, sbr. 17. gr.
     11.      Við 21. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
              Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar hafa verið á grundvelli þeirra lagaákvæða sem falla brott með lögum þessum halda einnig gildi sínu, þar á meðal ákvarðanir um útgáfu vegabréfsáritana og veitingu langtímavegabréfsáritana.
     12.      Við 22. gr.
                  a.      Við 3. mgr. d-liðar 1. tölul. bætist: eða skapað grundvöll lögheimilis hér á landi samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur.
                  b.      Í stað fjárhæðarinnar „90 evrur“ í 3. tölul. 2. mgr. b-liðar 2. tölul. komi: 30 evrur.
                  c.      Í stað fjárhæðarinnar „40.000 kr.“ í 4. tölul. 2. mgr. b-liðar 2. tölul. komi: 90 evrur.
                  d.      5. tölul. 2. mgr. b-liðar 2. tölul. orðist svo: Fyrir umsókn um skammtímadvalarleyfi, 12.200 kr.
                  e.      Í stað fjárhæðarinnar „40.000 kr.“ í 6. tölul. 2. mgr. b-liðar 2. tölul. komi: 300 evrur.
                  f.      Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018: Á eftir 3. málsl. 4. mgr. 14. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heimild til skráningar lögheimilis á grundvelli útgefins dvalarleyfis nær þó ekki til skammtímadvalarleyfis, sbr. 21. gr. laga um útlendinga.
     13.      Í stað orðanna „til ráðuneytisins“ í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða komi: til úrskurðarnefndar áritanamála.