Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 905  —  396. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi, nr. 51/2021 (heimildir til skráningar brotamanna).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti. Engar umsagnir bárust um málið.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi, nr. 51/2021, vegna innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/1190 frá 6. júlí 2022, um breytingu á reglugerð (ESB) 2018/1862 að því er varðar innfærslu upplýsingaskráninga í Schengen-upplýsingakerfið um ríkisborgara þriðju landa í þágu sambandsins. Lagðar eru til breytingar á lögunum sem fela í sér heimild til að skrá í Schengen-upplýsingakerfið ríkisborgara þriðju ríkja, sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum eða öðrum alvarlegum afbrotum. Innleiðing reglugerðarinnar er liður í að standa við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í Schengen-samstarfinu.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í ljósi þess að hryðjuverk og önnur alvarleg afbrot eru framin þvert á landamæri skipta upplýsingar, sem þriðju ríki og alþjóðastofnanir afla um þá sem fremja eða eru grunaðir um hryðjuverk eða önnur alvarleg afbrot, sífellt meira máli fyrir innra öryggi alls Schengen-svæðisins. Miklu máli skiptir að þeir sem vinna í framlínunni, eins og lögreglumenn og landamæraverðir, hafi aðgang að áreiðanlegum upplýsingum frá ríkjum utan Evrópu. Schengen-upplýsingakerfið hafi löngum þótt einn af mikilvægustu þáttum Schengen-samstarfsins og er frumvarpinu ætlað að heimila frekari skráningu upplýsinga í kerfið og gera notkun þess skilvirkari. Með innleiðingu reglugerðarinnar verður hægt að auka greiningargetu og rannsóknarhæfni lögreglu og styðja betur við sameiginlega löggæslusamvinnu Schengen-ríkjanna.
    Meiri hlutinn tekur undir þau orð og telur að sú heimild til skráningar sem frumvarpið leggur til muni auka öryggi hér á landi og vera mikilvægur liður í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi þar sem hún tryggir lögreglu aðgang að verðmætum upplýsingum, þá einkum við eftirlit á landamærum.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Sandra Sigurðardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 10. mars 2026.

Víðir Reynisson,
form.
Grímur Grímsson,
frsm.
Guðmundur Ari Sigurjónsson.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. Sandra Sigurðardóttir. Sigurður Örn Hilmarsson.