Ferill 330. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 943 — 330. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á skipalögum, nr. 66/2021 (EES-reglur).
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti.
Nefndinni bárust engar umsagnir um málið.
Með frumvarpinu er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit. Markmið með lagasetningunni er að innleiða þau ákvæði reglugerðarinnar sem kalla á lagabreytingu.
Helstu nýmæli reglugerðarinnar eru breytingar á valdi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, eða Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í tilviki EFTA-ríkjanna, til að leggja á sektir og févíti ef viðurkenndar stofnanir, þ.e. stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og hafa verið viðurkenndar til þeirra starfa, uppfylla ekki þau skilyrði sem kveðið er á um í reglugerðinni.
Umfjöllun nefndarinnar.
Í greinargerð með frumvarpinu hefur mat verið lagt á samræmi frumvarpsins við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar. Þar kemur m.a. fram að eðlilegt sé að líta svo á að ákveðið svigrúm sé fyrir hendi til að túlka ákvæði stjórnarskrár á þann hátt að ekki þrengi um of að möguleikum Íslands sem fullvalda þjóðréttaraðila til að tryggja hagsmuni sína sem best í samstarfi og samningum við aðrar þjóðir. Þá sé efni frumvarpsins á afmörkuðu og vel skilgreindu sviði og ekki mjög íþyngjandi fyrir íslenska ríkið eða þegna þess.
Fyrir nefndinni og í greinargerð kom fram að stofnanir af þessu tagi væru fáar og stórar og eigi sér langa sögu og útibú um heim allan. Engar slíkar stofnanir hafi höfuðstöðvar hér á landi og ólíklegt verði að teljast að slík stofnun verði stofnuð á sviði skipaskoðunar og -eftirlits eða útibú frá stofnun með viðurkenningu frá ESA, í kjölfar beiðni frá EFTA-ríki.
Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið og telur lögfestingu heimilda Eftirlitsstofnunar EFTA ekki brjóta í bága við stjórnskipunarreglur Íslands.
Breytingartillaga.
Með frumvarpinu er lagt til að í stað hugtaksins viðurkennt flokkunarfélag hvarvetna í skipalögum komi viðurkennd stofnun.
Til að tryggja samræmt orðfæri í lögum leggur meiri hlutinn til að hugtakinu verði einnig breytt á sama veg í lögum um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012. Meiri hlutinn leggur því til breytingu á þeim lögum.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við bætist ný grein, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Breyting á öðrum lögum.
Alþingi, 17. mars 2026.
| María Rut Kristinsdóttir, form., frsm. |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Dagur B. Eggertsson. | |
| Sigurður Helgi Pálmason. | Þóra Gunnlaug Briem. | ||