Ferill 95. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 95 — 95. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvernig fylgir Isavia ohf. því eftir við þýska fyrirtækið Heinemann að vöruframboð ýti undir „tilfinningu fyrir staðnum“ og íslenskum vörum verði stillt fram til að styrkja „staðartilfinningu“ eins og fram kom í útboðslýsingu?
2. Hvernig hyggst Isavia ohf. fylgja því eftir að Heinemann vinni með innlendum framleiðendum og birgjum og sýni „samfélagslega ábyrgð“ með því að styðja minni fyrirtæki, eins og fram kom í útboðsgögnum?
3. Telur ráðherra að Heinemann eigi eftir að styðja minni framleiðendur eða „vaxandi innlend vörumerki“ eins og útlistað var í útboðsgögnum?
4. Hver er afstaða ráðherra til fullyrðinga Félags atvinnurekenda um samskipti Heinemann við minni íslenska birgja eftir að tilkynnt var um samning fyrirtækisins um rekstur fríhafnarinnar, m.a. um háa framlegð af vörum og um breytt skilyrði um greiðslufrest og um aukinn kostnað birgjanna?
5. Hvernig hafa stjórnvöld fylgt eftir tilmælum Samkeppniseftirlitsins um að bæta umgjörð um starfsemi á Keflavíkurflugvelli, m.a. til að skapa samkeppni og auka hag almennings?
Munnlegt svar óskast.