Ferill 574. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 973  —  574. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um viðbrögð við mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum úti á landi.

Frá Ingvari Þóroddssyni.


     1.      Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir á grundvelli tillagna starfshóps um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar? Ef svo er, hvaða aðgerðir eru í undirbúningi og hvenær er ráðgert að farið verði í þær?
     2.      Telur ráðherra að svæðaskilgreining Byggðastofnunar endurspegli raunverulegan mönnunarvanda heilbrigðisþjónustu? Ef ekki, stendur til að endurskoða hana?
     3.      Hvernig hefur ráðuneytið metið mönnunarvanda á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að bregðast við þeim vanda?
     4.      Hver er afstaða ráðherra til þess að beita ívilnunum skv. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna gagnvart starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri og starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri, þrátt fyrir að Akureyri falli utan svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar?
     5.      Telur ráðherra að beiting 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna sé nóg til að koma til móts við mönnunarvanda heilbrigðiskerfisins úti á landi eða telur ráðherra að jafnframt þyrfti að skoða t.d. beitingu tímabundins skattafsláttar að fyrirmynd skattafsláttar fyrir erlenda sérfræðinga samkvæmt lögum um tekjuskatt?


Skriflegt svar óskast.