Ferill 444. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 993  —  444. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Mercosur.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gest frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Mercosur (Argentínu, Brasilíu, Paragvæ og Úrúgvæ) sem undirritaður var í Ríó de Janeiro 16. september 2025.
    Í greinargerð með tillögunni kemur fram að fríverslunarsamningurinn liðkar fyrir vöru- og þjónustuviðskiptum milli samningsaðila og felur auk þess í sér skuldbindingar sem lúta m.a. að fjárfestingum, vernd hugverkaréttinda og sjálfbærri þróun. Í samningnum er kveðið á um niðurfellingu tolla af öllum helstu útflutningsafurðum Íslands, ýmist strax við gildistöku hans eða í áföngum yfir lengra tímabil. Þá veitir samningurinn íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga í ríkjum Mercosur og bætir aðgang íslenskra þjónustuveitenda að þjónustumarkaði þeirra.
    Þá kemur fram í greinargerð að vöruútflutningur til ríkja Mercosur nam rúmum milljarði króna árið 2025, þar af 725 millj. kr. til Brasilíu. Helstu útflutningsafurðir Íslands þangað voru vélar til matvælaframleiðslu og sjávarafurðir. Vöruinnflutningur frá ríkjum Mercosur nam 32,6 milljörðum kr. árið 2025 en 93% þess innflutnings var áloxíð frá Brasilíu sem er lykilhráefni við álframleiðslu. Einnig var flutt inn kjöt, drykkir og ávextir frá Mercosur-ríkjunum.
    Meiri hlutinn tekur undir það mat að með samningnum sé lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga á mörkuðum Mercosur-ríkjanna.
    Meiri hlutinn flytur tæknilega breytingartillögu þess efnis að dagsetning og staður undirritunar komi fram í tillögugrein eins og hefð er fyrir i ályktunum Alþingis þar sem heimild er veitt til fullgildingar fríverslunarsamninga.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við tillögugreinina bætist: sem undirritaður var 16. september 2025 í Ríó de Janeiro.

    Víðir Reynisson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
.

Alþingi, 25. mars 2026.


Pawel Bartoszek,
form.
Sigmar Guðmundsson,
frsm.
Dagbjört Hákonardóttir.
Diljá Mist Einarsdóttir. Sigurður Helgi Pálmason. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.