Ferill 79. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 999 — 79. mál.
Frumvarp til laga
um vegabréfsáritanir.
(Eftir 2. umræðu, 26. mars.)
I. KAFLI
Gildissvið, markmið, yfirstjórn o.fl.
1. gr.
Gildissvið og markmið.
Markmið laganna er að tryggja skilvirka og samhæfða framkvæmd við útgáfu vegabréfsáritana í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna aðildar að Schengen-samstarfinu. Jafnframt er það tilgangur laganna að stuðla að tryggri landamærastjórn og skilvirkri framkvæmd landamæravörslu.
Við framkvæmd og túlkun laganna skal framfylgja þeim þjóðréttarlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist varðandi vegabréfsáritanir, einkum í tengslum við Schengen-samstarfið.
2. gr.
Yfirstjórn og samstarf.
Ráðherra, ráðuneyti og sendiskrifstofur Íslands móta og fara með yfirstjórn framkvæmdar og annast framkvæmd laga þessara.
Ráðherra skal eiga í virku samstarfi við ráðherra sem fer með mál er varða Schengen, löggæslu, landamæravörslu og málefni útlendinga, svo og ráðherra sem fer með skipan ferðamála.
Ráðherra skal jafnframt eiga í samstarfi við lögregluyfirvöld, ferðamálayfirvöld, Útlendingastofnun, Vinnueftirlit ríkisins og Vinnumálastofnun í samræmi við tilgang og markmið laga þessara.
Ráðherra sem fer með mál er varða Schengen-samstarfið skipar stýrihóp um vegabréfsáritanir. Aðild að stýrihópnum eiga stjórnvöld sem annast framkvæmd laga þessara og önnur stjórnvöld sem koma að framkvæmd málaflokksins. Stýrihópurinn skal vinna að samhæfingu Schengen-samstarfsins er varðar vegabréfsáritanir og skila árlegri skýrslu til ráðherra.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Aðflutningshætta: Hætta á að útlendingur dvelji á landinu eða Schengen-svæðinu umfram leyfilegan tíma eða í öðrum tilgangi en umsókn um vegabréfsáritun gefur til kynna eða muni ekki yfirgefa landið eða Schengen-svæðið og setjast ólöglega að eða sækja um alþjóðlega vernd, dvalarleyfi eða önnur sambærileg leyfi eða úrræði.
2. Aðstandandi: Maki, sambúðarmaki, börn viðkomandi yngri en 18 ára í forsjá hans og á framfæri og foreldrar 67 ára eða eldri.
3. Afturköllun: Þegar stjórnvald tekur að eigin frumkvæði aftur lögmæta ákvörðun sína um veitingu vegabréfsáritunar, sem þegar hefur verið birt, ef forsendur hafa breyst þannig að handhafi hennar uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar.
4. EES-ríkisborgari: Útlendingur sem er ríkisborgari ríkis sem fellur undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
5. EFTA-ríkisborgari: Útlendingur sem er ríkisborgari ríkis sem fellur undir stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu.
6. Ferðaskilríki: Gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki í stað vegabréfs við komu til landsins.
7. Frávísun: Ákvörðun stjórnvalds um að vísa útlendingi frá landinu til heimalands eða annars ríkis þar sem hann getur sýnt fram á löglega heimild til dvalar.
8. Ógilding: Þegar stjórnvald ógildir að eigin frumkvæði lögmæta ákvörðun sína um útgáfu vegabréfsáritunar, sem þegar hefur verið birt, ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef ástæða er til að ætla að vegabréfsáritun hafi verið fengin með sviksamlegum hætti.
9. Schengen-ríki: Ríki sem eru þátttakendur í Schengen-samstarfinu.
10. Schengen-samstarfið: Samstarf Evrópuríkja á sviði lögreglusamstarfs og landamæraeftirlits sem byggist á Schengen-samningnum.
11. Schengen-upplýsingakerfið: Rafrænt gagnasafn sem starfrækt er hér á landi og tengt sameiginlegu upplýsingakerfi á Schengen-svæðinu, sbr. lög um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi.
12. Útlendingur: Einstaklingur sem hefur ekki íslenskan ríkisborgararétt.
13. Vegabréfsáritun: Heimild gefin út af íslenskum stjórnvöldum, eða fyrir þeirra hönd, til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar á yfirráðasvæði Schengen-ríkjanna í allt að 90 daga eða skemur á 180 daga tímabili frá fyrsta komudegi til yfirráðasvæðis Schengen-ríkjanna.
II. KAFLI
Áritunarskylda, undanþágur o.fl.
4. gr.
Áritunarskylda.
5. gr.
Gildistími vegabréfsáritunar.
Vegabréfsáritun skal gilda fyrir eina eða fleiri komur til landsins í allt að 90 daga á nánar tilgreindu tímabili.
6. gr.
Gildissvæði vegabréfsáritana.
Vegabréfsáritun getur:
a. gilt til fyrirhugaðrar dvalar á yfirráðasvæði allra Schengen-ríkjanna,
b. haft takmarkað gildissvæði og gilt einungis á yfirráðasvæði eins eða fleiri Schengen-ríkja en ekki allra,
c. gilt til gegnumferðar um flughöfn.
Ráðherra setur reglugerð um gildissvæði vegabréfsáritana og áritanir með mismunandi gildissvið. Í reglugerðinni skal einnig mæla fyrir um skilyrði fyrir veitingu slíkra áritana.
7. gr.
Komuáritanir.
8. gr.
Undanþágur frá áritunarskyldu.
Erlendur ríkisborgari sem hefur dvalarleyfi gefið út af ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu er undanþeginn áritunarskyldu. Sama gildir um erlendan ríkisborgara sem hefur bráðabirgðadvalarleyfi gefið út af þátttökuríki í samstarfinu, enda hafi hann ferðaskilríki gefin út af sama ríki.
Aðstandendur EES- og EFTA-ríkisborgara sem búsettir eru hér á landi, sem og íslenskra ríkisborgara, skulu vera undanþegnir kvöð um vegabréfsáritun ef þeir eru handhafar gilds dvalarskírteinis skv. 90. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Slíkar vegabréfsáritanir skulu að öðrum kosti gefnar út án endurgjalds eins fljótt og hægt er og hljóta flýtimeðferð samkvæmt almennum reglum þar um.
Ráðherra setur með reglugerð frekari undanþágur frá áritunarskyldu.
III. KAFLI
Stjórnsýsla, málsmeðferð o.fl.
9. gr.
Útgáfa vegabréfsáritunar.
a. hann hefur gilt vegabréf eða annað gilt kennivottorð sem er viðurkennt sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og gildir í a.m.k. 90 daga fram yfir gildistíma áritunarinnar,
b. hann hefur heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. einn mánuð fram yfir gildistíma áritunarinnar,
c. hann hefur nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér löglega,
d. hann getur sýnt fram á tilgang dvalar,
e. ekki liggur fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016,
f. hann er ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinað að koma til landsins,
g. hann telst ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi, lýðheilsu eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu,
h. hann hefur gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Heimilt er að veita útlendingi vegabréfsáritun með mismunandi gildissvæði, sbr. 6. gr.
Í undantekningartilvikum er lögregluyfirvöldum heimilt að gefa út vegabréfsáritanir á landamærastöðvum. Ráðherra ákveður skilyrði slíkrar áritunar með reglugerð.
Ákvæði IV.–VII. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ekki um málsmeðferð og ákvarðanatöku samkvæmt lögum þessum. Útlendingur, sem synjað hefur verið um vegabréfsáritun eða hún verið afturkölluð, getur krafist endurupptöku á slíkri ákvörðun með málskoti skv. 17. gr.
Ekki þarf að undirrita ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar með persónugreinanlegum hætti.
Starfsfólk sem tekur ákvarðanir um útgáfu vegabréfsáritana skal uppfylla skilyrði öryggisvottunar samkvæmt varnarmálalögum.
10. gr.
Fyrirsvarssamningar.
Hafi íslensk stjórnvöld ekki sendiskrifstofu í þriðja ríki skal kappkosta, ef það þykir þjóna hagsmunum Íslands, að koma á samkomulagi um fyrirsvar við aðildarríki sem hafa sendiskrifstofur í því ríki eða eftir atvikum fela utanaðkomandi þjónustuaðila, sbr. 11. gr., að taka á móti umsóknum og senda til nærliggjandi sendiskrifstofu Íslands.
11. gr.
Utanaðkomandi þjónustuaðilar.
12. gr.
Mat á umsóknum og áhættugreining.
Við meðferð umsóknar um samræmda vegabréfsáritun skal kanna hvort umsækjandi uppfylli öll skilyrði áhættumats samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur.
Heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun.
Til að tryggja skilvirkni og vandaða framkvæmd þessa ákvæðis er ráðuneytinu heimilt að vinna áhættugreiningar í samráði við önnur Schengen-ríki, stjórnvöld útlendingamála og lögregluyfirvöld í þágu öryggis ytri landamæra.
13. gr.
Vinnsla og miðlun persónuupplýsinga.
Ráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands, lögregluyfirvöldum og öðrum aðilum sem hafa hlutverki að gegna samkvæmt lögum þessum er heimilt að miðla persónuupplýsingum að því marki sem telst nauðsynlegt vegna starfsemi og hlutverks þeirra samkvæmt lögum þessum. Jafnframt er þeim heimilt að safna og skiptast á upplýsingum um umsóknir útlendinga um vegabréfsáritanir við Útlendingastofnun, handhafa lögregluvalds og tollyfirvöld í þágu landamæraöryggis og greiningarstarfs.
Ráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands, lögregluyfirvöldum og öðrum stjórnvöldum sem hlutverki gegna samkvæmt lögum þessum er heimilt að miðla persónuupplýsingum, þar á meðal upplýsingum sem viðkvæmar geta talist, einkum lífkennaupplýsingum, vegna samráðs við önnur stjórnvöld í samræmi við ákvæði laga þessara og útlendingalaga. Jafnframt er þeim heimilt að safna og skiptast á upplýsingum um umsóknir útlendinga um vegabréfsáritanir við önnur stjórnvöld í þágu landamæraeftirlits, landamæraöryggis og greiningarstarfs.
Stjórnvöldum skv. 1. mgr. er heimilt að samkeyra persónuupplýsingar útlendinga svo tryggja megi að dvöl þeirra hér á landi sé lögleg. Í því skyni er þessum stjórnvöldum heimilt að afla upplýsinga hjá skattyfirvöldum, Þjóðskrá Íslands, ferðamálayfirvöldum, Útlendingastofnun, Vinnueftirliti ríkisins, Vinnumálastofnun og félagsþjónustu sveitarfélaga. Er þeim stjórnvöldum skylt að miðla umbeðnum upplýsingum.
Fái ráðuneytið eða lögregluyfirvöld upplýsingar um lögbrot ber þeim að upplýsa hlutaðeigandi stjórnvald um málið og afhenda þau gögn sem stjórnvaldið krefst.
14. gr.
Upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir.
15. gr.
Synjun umsóknar um vegabréfsáritun.
Þegar ráðuneytið telur sérstaka ástæðu til er heimilt að óska eftir umsögn lögregluyfirvalda til að afla upplýsinga um sakaferil gestgjafa í því skyni að meta hvort hafna skuli umsókn á grundvelli þessa ákvæðis.
16. gr.
Ógilding og afturköllun.
Lögregla eða ráðuneytið skal afturkalla vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar eru ekki lengur uppfyllt.
Lögreglu er heimilt að vísa útlendingi úr landi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga uppfylli hann ekki skilyrði til landgöngu. Ákvæði í lögum um útlendinga um stjórnvald í málum vegna frávísunar og um málskot gilda eftir því sem við á.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um afturköllun og ógildingu vegabréfsáritana.
17. gr.
Stjórnsýslukæra.
Úrskurður úrskurðarnefndar í slíku máli skal jafnan liggja fyrir innan 30 virkra daga frá því að beiðni var móttekin.
Samhliða framlagningu stjórnsýslukæru ber að greiða málskotsgjald. Mál skal fellt niður án efnismeðferðar ef greiðsla berst ekki innan áskilins frests.
18. gr.
Úrskurðarnefnd áritanamála.
Í úrskurðarnefnd áritanamála eiga sæti þrír menn sem skulu fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Ráðherra skipar þrjá nefndarmenn til þriggja ára í senn og skal einn þeirra vera formaður. Einn nefndarmanna skal skipaður að fenginni tilnefningu þess ráðherra sem fer með mál er varða Schengen-samstarfið. Heimilt er að skipa þrjá menn til vara. Kostnaður vegna úrskurðarnefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
Formanni er heimilt að úrskurða einn í málum sem eru einföld úrlausnar og varða ekki verulega hagsmuni. Nefndin setur fullskipuð nánari reglur um hvenær heimildinni verður beitt.
IV. KAFLI
Gjaldtaka, reglugerðarheimild o.fl.
19. gr.
Gjaldtaka.
20. gr.
Reglugerðir.
1. Skyldu til að hafa vegabréfsáritun til að fara um flugvöll, sbr. 2. mgr. 6. gr.
2. Komuáritanir, sbr. 7. gr.
3. Undanþágur frá áritunarskyldu og útgáfu vegabréfsáritana fyrir aðstandendur EES- og EFTA-ríkisborgara sem búsettir eru hér á landi, sem og íslenskra ríkisborgara, þ.m.t. skilyrði, takmarkanir og flýtimeðferð, sbr. 8. gr.
4. Skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana, sbr. 1. mgr. 9. gr., þ.m.t. vegabréfsáritana vegna gegnumferðar um flughöfn, vegabréfsáritana til diplómata, og skilyrði áhættumats vegna þeirra, sbr. 1.–3. mgr. 12. gr.
5. Samstarf og samningagerð við utanaðkomandi þjónustuaðila, sbr. 11. gr.
6. Áhættugreiningar, sbr. 4. mgr. 12. gr.
7. Aðgang ráðuneytisins og sendiskrifstofa Íslands að íslenskum hluta upplýsingakerfis um vegabréfsáritanir, sbr. 14. gr.
8. Reglur um störf og skrifstofuhald úrskurðarnefndar áritanamála, svo sem um móttöku erinda og málsmeðferð, þ.m.t. að kærumál verði einvörðungu endurskoðuð á grundvelli málsgagna sem lágu fyrir þegar stjórnvaldsákvörðun var tekin, sbr. 17. gr.
21. gr.
Innleiðing.
1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 frá 13. júlí 2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir.
2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 767/2008 frá 9. júlí 2008 um upplýsingakerfið um vegabréfsáritanir (VIS) og skipti á gögnum milli aðildarríkjanna um vegabréfsáritanir til stuttrar dvalar (VIS-reglugerð).
22. gr.
Gildistaka.
Reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli um vegabréfsáritanir, sem sett hafa verið á grundvelli laga um útlendinga eða annarrar löggjafar, skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau brjóta ekki í bága við ákvæði laga þessara, uns nýjar reglugerðir og stjórnvaldsfyrirmæli samkvæmt lögum þessum hafa verið gefin út.
Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar hafa verið á grundvelli þeirra lagaákvæða sem falla brott með lögum þessum halda einnig gildi sínu, þar á meðal ákvarðanir um útgáfu vegabréfsáritana og veitingu langtímavegabréfsáritana.
23. gr.
Breytingar á öðrum lögum.
1. Lög um útlendinga, nr. 80/2016:
a. A-liður 2. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.
b. Orðið „vegabréfsáritun“ í 1. mgr. 15. gr. laganna fellur brott.
c. 20. gr. laganna fellur brott.
d. 21. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:
Skammtímadvalarleyfi.
Heimilt er að afturkalla skammtímadvalarleyfi ef útlendingur brýtur gegn skilyrðum þess, t.d. með því að stunda atvinnu á innlendum vinnumarkaði án heimildar.
Dvöl samkvæmt ákvæði þessu getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis eða skapað grundvöll lögheimilis hér á landi samkvæmt lögum um lögheimili og aðsetur.
Umsókn um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal hafnað ef líklegt er talið að umsækjandi muni ekki yfirgefa landið þegar leyfi hans rennur út.
Ráðherra setur reglugerð um nánari skilyrði og framkvæmd skammtímadvalarleyfis og í hvaða tilvikum heimilt er að gefa út slíkt dvalarleyfi.
e. 2. málsl. 5. mgr. 81. gr. laganna fellur brott.
f. Orðin „m.a. um flýtimeðferð skv. 5. mgr.“ í 7. mgr. 81. gr. laganna falla brott.
g. 6. og 7. tölul. 1. mgr. og 6. tölul. 2. mgr. 120. gr. laganna falla brott.
2. Lög um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991:
a. 3.–5. tölul. 3. mgr. 14. gr. laganna falla brott.
b. Á eftir 14. gr. b laganna kemur ný grein, 14. gr. c, svohljóðandi:
Fyrir umsókn um vegabréfsáritun skal utanríkisþjónustan gefa út gjaldskrá á mánaðarfresti sem tekur mið af miðgengi evru mánaðarins á undan fyrir útgáfu nýrrar gjaldskrár og námunda niður að næstu heilu tölu. Fyrir umsóknir sem mótteknar eru erlendis er gjald innheimt í evrum.
Á grundvelli laga um vegabréfsáritanir greiðast eftirfarandi gjöld:
1. Vegabréfsáritun, 6–12 ára, 45 evrur.
2. Vegabréfsáritun, 13 ára og eldri, 90 evrur.
3. Vegabréfsáritun, framlenging, 30 evrur.
4. Fyrir útgáfu komuáritunar, 90 evrur.
5. Fyrir umsókn um skammtímadvalarleyfi, 12.200 kr.
6. Fyrir málskot skv. 17. gr. laga um vegabréfsáritanir, 300 evrur.
3. Lög um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi, nr. 51/2021: Orðin „við afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritun, þ.m.t. við ógildingu, afturköllun eða framlengingu vegabréfsáritana“ í d-lið 1. mgr. 42. gr. laganna falla brott.
4. Lög um landamæri, nr. 136/2022: Á eftir orðinu „útlendinga“ í 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: lögum um vegabréfsáritanir.
5. Lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018: Á eftir 3. málsl. 4. mgr. 14. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heimild til skráningar lögheimilis á grundvelli útgefins dvalarleyfis nær þó ekki til skammtímadvalarleyfis, sbr. 21. gr. laga um útlendinga.
Ákvæði til bráðabirgða.
Mál sem borist hafa kærunefnd útlendingamála fyrir gildistöku laga þessara sem varða vegabréfsáritanir, en hafa ekki verið afgreidd með ákvörðun, skulu flytjast til úrskurðarnefndar áritanamála. Mál teljast óafgreidd hafi endanleg ákvörðun ekki verið tekin fyrir gildistöku laganna. Um þau gilda ákvæði laga þessara nema knýjandi rök standi til þess að mál verði afgreitt í samræmi við gildandi lög á þeim tíma sem ákvörðun var kærð.
Um umsóknir um vegabréfsáritanir sem borist hafa utanríkisráðuneytinu, sendiskrifstofum Íslands og Útlendingastofnun fyrir gildistöku laga þessara, en hafa ekki verið afgreiddar með ákvörðun, gilda ákvæði laga þessara.