Verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir
106. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Markmið
Innleiðing á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum (UCITS). Tilskipuninni er ætlað að auðvelda markaðssetningu verðbréfasjóða utan heimalands.
Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að rekstrarfélögum sem hyggjast markaðssetja sjóði sína erlendis verði heimilt að notast við staðlað form lykilupplýsinga og þeim verði veitt heimild á grundvelli svokallaðs Evrópupassa til að stofna og stjórna sjóðum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þá eru gerðar tillögur er varða lagaramma svokallaðra höfuð- og fylgisjóða og vegna innanlandssamruna og millilandasamruna verðbréfasjóða.
Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum nr. 128/2011, um verðbréfasjóði, fjárfestingasjóði og fagfjárfestasjóði.
- Endurflutt: Verðbréfasjóðir, fjárfestingarsjóðir og fagfjárfestasjóðir, 706. mál (efnahags- og viðskiptaráðherra) á 140. þingi (31.03.2012)
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.
Umsagnir (helstu atriði)
Umsagnir eru fáar með minniháttar athugasemdum.
Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.Aðrar upplýsingar
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB, um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum (UCITS).