Samantekt um þingmál

Almannatryggingar

322. mál á 144. löggjafarþingi.
Félags- og húsnæðismálaráðherra.

Markmið

Frumvarpið er liður í heildarendurskoðun laga um almannatryggingar með það að markmiði að auka skýrleika og lagfæra hnökra.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um stjórnsýslu Tryggingastofnunar.
Einnig eru lögð til ákvæði til að sporna gegn víxlverkunum örorkubóta almannatrygginga og örorkulífeyris lífeyrissjóða.
Lagðar eru til breytingar sem lúta að greiðslu bóta, réttarstöðu sambýlisfólks, greiðslum til fanga og til þriðja aðila.
Vinnusamningar öryrkja færast frá Tryggingastofnun til Vinnumálastofnunar og lagt er til að IV. kafli laganna, sem fjallar um slysatryggingar, falli brott. 

Breytingar á lögum og tengd mál

Samhliða frumvarpinu leggur heilbrigðisráðherra fram frumvarp til laga um slysatryggingar almannatrygginga.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Meðal þess sem gagnrýnt var í umsögnum var ákvæði um heimildir ráðherra til að ákveða staðsetningu Tryggingastofnunar og þjónustustöðva hennar. Ákvæði um að fella niður bætur til lífeyrisþega sem afplána refsivist var gagnrýnt og gerðar voru athugasemdir við 11. gr. frumvarpsins um greiðslur til þriðja aðila, auk fleiri greina.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt með minni háttar breytingum.



Síðast breytt 02.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.