Samantekt um þingmál

Haf- og vatnarannsóknir

391. mál á 144. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að sameina Hafrannsóknastofnun og Veiðimálastofnun 1. janúar 2016.

Helstu breytingar og nýjungar

Ekki er um efnisbreytingar að ræða varðandi starfsemi stofnananna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Felld verða úr gildi lög um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, nr. 64/1965, sem Hafrannsóknastofnun starfar eftir og lög um Veiðimálastofnun, nr. 59/2006.

Kostnaður og tekjur

Talið er að þegar til lengri tíma sé litið náist fram hagræðing en í byrjun mun falla til kostnaður vegna húsnæðis og biðlaunaréttar, allt að 250 milljónum króna. 

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru almennt jákvæðar en stéttarfélög hafa nokkar áhyggjur af réttarstöðu og starfsöryggi starfsmanna.

Afgreiðsla

Afgreitt úr nefnd til 2. umræðu.

Aðrar upplýsingar

Hafrannsóknastofnun.

Veiðimálastofnun.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti - greinargerð vegna mats á möguleikum til frekari samþættingar við framkvæmd verkefna stofnana ráðuneytisins (2010). ParX: Reykjavík. 

 



Síðast breytt 07.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.