Samantekt um þingmál

Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki

405. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að framlengja gildistíma laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki um fimm ár.

Helstu breytingar og nýjungar

Ekki er um efnisbreytingar að ræða en nokkrum atriðum sem snúa að framkvæmd laganna er breytt með tilliti til nýrrar reglugerðar ESB.

Breytingar á lögum og tengd mál

Framlengja á lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif fyrr en 2016 en þá má gera ráð fyrir að útgjöld vegna stuðnings við nýsköpunarfyrirtæki verði um 120 milljónir króna.

Umsagnir (helstu atriði)

Ein jákvæð  athugasemd barst og var tekið tillit til hennar.

Afgreiðsla

Samþykkt með minniháttar breytingu.

Aðrar upplýsingar

Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Hvaða ríkisaðstoð er heimiluð samkvæmt EES-samningnum?

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 651/2014 um almenna hópundanþágu.




Síðast breytt 16.04.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.