Samantekt um þingmál

Meðferð og sala eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum

705. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að mæla fyrir um sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Helstu breytingar og nýjungar

Í stað Bankasýslu ríkisins verði sett á fót ráðgjafarnefnd um fjármálafyrirtæki í ríkiseigu sem verði ráðherra til ráðgjafar um meðferð og sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Felld verða úr gildi lög um Bankasýslu ríkisins nr. 88/2009 og lög um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum nr. 155/2012.

Kostnaður og tekjur

Lækkar útgjöld ríkissjóðs um 40 milljónir króna.

Umsagnir (helstu atriði)

Í umsögnum og minnisblöðum koma fram jákvæðar ábendingar og athugasemdir um frumvarpið og einnig hörð gagnrýni á efni þess og tilgang.

Afgreiðsla

Frumvarpið var ekki afgreitt úr nefnd.

Aðrar upplýsingar

Bankasýsla ríkisins.

Eigendastefna ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Fjármálaráðuneytið 1. sept. 2009.

Finansiel Stabilitet (Danmörk).

Solidium (Finnland).



Síðast breytt 07.07.2015. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.