Þátttaka íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi
9. mál á 144. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Markmið
Að heimila stofnun ríkisolíufélags.Helstu breytingar og nýjungar
Félagið skal sjá um alla umsýslu og framkvæmd á þátttöku ríkisins í útgefnum kolvetnisleyfum eða tengdri starfsemi og vera leyfishafi fyrir hönd ríkisins í þeim leyfum sem ríkið tekur þátt í. Sérstaklega er tekið fram að félaginu verði óheimilt að starfa sem vinnslufyrirtæki. Gert er ráð fyrir að frumvarpið öðlist lagagildi við samþykkt þess en komi til framkvæmda þegar ákvörðun um stofnun hlutafélags liggur fyrir.Breytingar á lögum og tengd mál
Um er að ræða ný lög en vísað er til laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis.- Skylt mál: Orkustofnun og leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis, 10. mál (iðnaðar- og viðskiptaráðherra) á 144. þingi (09.09.2014)
Kostnaður og tekjur
Stofnkostnaður er áætlaður um 20 milljónir króna.Umsagnir (helstu atriði)
Tvær umsagnir án athugasemda bárust.Afgreiðsla
Samþykkt með þeim breytingum að hert er á hæfniskröfum stjórnenda.Aðrar upplýsingar
Norska ríkisolíufélagið Petoro.
Grænlenska ríkisolíufélagið Nunaoil.