Samantekt um þingmál

Styrkir vegna sýninga á kvikmyndum á íslensku í kvikmyndahúsum hér á landi

369. mál á 145. löggjafarþingi.
Mennta- og menningarmálaráðherra.

Markmið

Að setja lagastoð fyrir því að hægt verði að efna ákvæði samkomulags um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu árin 2012-2015 um útgreiðslu miðastyrkja.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að greiddir verði styrkir til kvikmyndaframleiðenda vegna sýninga á íslenskum bíómyndum í kvikmyndahúsum hér á landi til að vega upp á móti áhrifum af álagningu virðisaukaskatts á aðgöngumiða sem kom til framkvæmda árið 2013. 

Kostnaður og tekjur

Gert er gert ráð fyrir 30 milljóna kr. fjárheimild til miðastyrkja í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016.

Umsagnir (helstu atriði)

Umsagnir voru almennt jákvæðar en athugasemdir voru gerðar við einstaka atriði.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu árin 2012-2015.
Sjá 1. gr. laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum nr.  146/2012.
Sjá 1. gr. kvikmyndalaga nr. 137/2001.


Síðast breytt 10.03.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.