Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki

589. mál á 145. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að aðlaga íslenskan rétt að regluverki ESB á sviði fjármálamarkaðar.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingar fjalla um stofnun, starfsemi og varfærniskröfur fjármálafyrirtækja ásamt nýjum og skýrari skilgreiningum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um fjármálafyrirtæki, nr.  161/2002.
  • Skylt mál: Fjármálafyrirtæki, 571. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 144. þingi (25.02.2015)

Kostnaður og tekjur

Hefur óveruleg áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum orðalagsbreytingum til áréttingar og útskýringa en að öðru leyti óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Basel Committee on Banking Supervision (Basel-nefndin um bankaeftirlit).

International regulatory framework for banks (Basel III reglurnar), sem verið er að innleiða í Evrópulöggjöf.

Tilskipun 2013/36/ESB um stofnun og starfsemi fjármálafyrirtækja og eftirlit með þeim.

Reglugerð 2013/575/ESB um varfærniskröfur vegna starfsemi lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja (CRR).



Síðast breytt 01.09.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.