Meðferð sakamála
659. mál á 145. löggjafarþingi.
Innanríkisráðherra.
Markmið
Að setja skýrari skilyrði fyrir beitingu tiltekinna aðgerða í þágu rannsóknar. Þær aðgerðir sem um ræðir eru símahlustun, upptaka á hljóðum og merkjum, taka ljósmynda og kvikmynda og notkun eftirfararbúnaðar.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að heimild lögreglu til að beita símahlustun og skyldum aðgerðum við rannsókn mála verði þrengd. Gert er ráð fyrir að þeim sem aðgerð beinist að verði skipaður lögmaður sem gæta á hagsmuna hans. Í 3. gr. frumvarpsins er lagt til að lögreglu verði veitt frekara aðhald þegar kemur að framkvæmd símahlustunar og skyldra aðgerða.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008.- Skylt mál: Símahleranir, 504. mál (KH) á 111. þingi (06.05.1989)
- Skylt mál: Meðferð sakamála, 292. mál (innanríkisráðherra) á 141. þingi (23.10.2012)
- Skylt mál: Hleranir frá ársbyrjun 2008, 517. mál (BjarnB) á 141. þingi (14.12.2012)
- Skylt mál: Símhleranir hjá alþingismönnum, 772. mál (ÖS) á 145. þingi (18.05.2016)
Kostnaður og tekjur
Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs umfram gildandi fjárlög 2016 muni aukast um 20 milljónir kr. árið 2017 og árlega um 11 milljónir kr. frá og með árinu 2018.Afgreiðsla
Frumvarpið var samþykkt með orðalagsbreytingum. Við bættist bráðabirgðaákvæði þar sem ráðherra er falið að kanna og greina leiðir í því skyni að veita lögreglu aðhald við rannsókn mála, svo sem öflun og meðferð fjarskiptaupplýsinga, upptöku á hljóðum og merkjum og ljósmyndun og notkun eftirfararbúnaðar.Aðrar upplýsingar
Lög á Norðurlöndunum.
Noregur
Lov om rettergangsmåten i straffesaker (Straffeprosessloven) LOV-1981-05-22-25.
Kafli 16a Avlytting og annen kontroll av kommunikasjonsanlegg (kommunikasjonskontroll).
Danmörk
Bekendtgørelse af lov om rettens pleje. LBK nr 1255 af 16/11/2015.
Kafli 71 Indgreb i meddelelseshemmeligheden, observation, dataaflæsning og forstyrrelse eller afbrydelse af radio- eller telekommunikation.
Svíþjóð
Rättegångsbalk (1942:740).
27 kap. Om beslag, hemlig avlyssning av elektronisk kommunikation m.m.
Lag (2007:978) om hemlig rumsavlyssning.
Lag (2008:854) om åtgärder för att utreda vissa samhällsfarliga brott.
Finnland
Polislag 22.7.2011/872.
Sjá 5. kafla, Hemliga metoder för inhämtande av information.
Tvångsmedelslag 22.7.2011/806.