Samantekt um þingmál

Fjármálafyrirtæki

303. mál á 149. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða tilskipun ESB um stofnun og rekstur lánastofnana og fjárfestingarfyrirtækja og varfærniseftirlit með þeim.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að takmarkanir verði settar á hversu mörgum störfum stjórnarmenn og framkvæmdastjóri í kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum geta sinnt í stjórnareiningum annarra félaga samhliða stjórnarsetu eða starfi framkvæmdastjóra í kerfislega mikilvægu fjármálafyrirtæki. Einnig er gert ráð fyrir að atriðum er varða upplýsingaskyldu endurskoðenda verði breytt í samræmi við tilskipanir Evrópusambandsins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

Kostnaður og tekjur

Ekki liggja fyrir upplýsingar um áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með lítils háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf í öðrum löndum

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om finansiel virksomhed  LBK nr 1140 af 26/09/2017.

Svíþjóð
Lag om bank- och finansieringsrörelse  ( 2004:297).

Þýskaland
Gesetz über das Kreditwesen (Kreditwesengesetz - KWG)  10.07.1961.






Síðast breytt 19.02.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.