Samantekt um þingmál

Taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður

710. mál á 149. löggjafarþingi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Markmið

Að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á umræddum svæðum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að tekin verði upp gjaldtaka vegna nýtingar fiskeldissvæða í sjó. Jafnframt er lagt til að stofnaður verði fiskeldissjóður til að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Gert er ráð fyrir að Fiskistofa annist framkvæmd laganna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög.

Kostnaður og tekjur

Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs árið 2020 muni hækka um 133,8 milljónir kr., að gjöld hækki um 3 milljónir kr. og áhrif á afkomu ríkissjóðs verði því jákvæð um 130,8 milljónir kr. Árið 2021 er áætlað að tekjur ríkissjóðs verði 341,9 milljónir kr., gjöld 117 milljónir kr. og áhrif á afkomu ríkissjóðs því jákvæð um 224,9 milljónir kr. 

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Löggjöf í öðrum löndum

Færeyjar
Løgtingslóg um loyvisgjald á alivinnu  nr. 64/2014.

Noregur
Lov om eigedomsskatt til kommunane (eigedomsskattelova)  LOV-1975-06-06-29.


Havbruksfondet í Noregi.



Síðast breytt 26.06.2019. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.