Samantekt um þingmál

Tekjuskattur

3. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að bæta gæði skjölunar og skil skjölunarskyldra aðila á upplýsingum vegna milliverðlagningar.

Helstu breytingar og nýjungar

Annars vegar er lagt til að skýra orðalag 1. málsl. 5. mgr. 57. gr. laga um tekjuskatt svo að ljóst sé að skjölunarskylda aðila nái einnig til viðskipta lögaðila við fasta starfsstöð sína. Hins vegar er lagt til að ríkisskattstjóri fái sektarheimild þar sem skort hefur úrræði til að framfylgja því að skattaðili sinni skyldu sinni skv. 5. mgr. 57. gr. um skjölunarskyldu aðila.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
  • Endurflutt: Tekjuskattur, 594. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 150. þingi (18.02.2020)

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum breytingum, einkum hvað varðar sektarheimildir.


Síðast breytt 03.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.