Samantekt um þingmál

Fjarskiptastofa

506. mál á 151. löggjafarþingi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Markmið

Að semja lög og reglur um Fjarskiptastofnun sem hefur umsjón með framkvæmd fjarskipta og mætir væntingum samfélagsins og þörfum í heimi fjarskipta- og upplýsinga­tækni.

Helstu breytingar og nýjungar

Helstu breytingar og nýmæli varða aukna áherslu á nýsköpun og framfarir og hvernig Fjarskiptastofnun geti fylgt eftir hraðri tækniþróun sem best og stutt við slíka þróun. Frumvarpið hefur m.a. að geyma ákvæði um framþróun og uppbyggingu fjarskipta, rannsóknir, þróunarstarf og fræðslu. Þá er aukin áhersla á samstarf, bæði á innlendum vettvangi og erlendis.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um Póst- og fjarskiptastofnun, nr. 69/2003.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir kostnaðarauka fyrir ríkissjóð vegna verkefna Fjarskiptastofnunar umfram það sem rúmast ætti innan fjárhagsramma stofnunarinnar.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 24.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.