Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru

769. mál á 151. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að styðja við bakið á heimilum og rekstraraðilum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að umsóknarfrestur um lokunarstyrki verði framlengdur til 30. september 2021. Einnig er lagt til að gildistími viðspyrnustyrkjaúrræðisins verði framlengdur út nóvember 2021 og að heimilt verði að sækja um styrkina út árið 2021. Þá er lagt til að hámarksfjárhæðir lokunar- og viðspyrnustyrkja verði hækkaðar úr 120 milljónum kr. í 260 milljónir kr. Enn fremur er lagt til að greiddur verði sérstakur barnabótaauki að fjárhæð 30.000 kr. með hverju barni til þeirra sem fá ákvarðaðar barnabætur.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, nr. 38/2020.
Lög um viðspyrnustyrki, nr. 160/2020.
Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.

Kostnaður og tekjur

Lokunarstyrkir: Endanleg heildaráhrif af framlengingunni á ríkissjóð eru óviss.
Viðspyrnustyrkir: Endanleg heildaráhrif af framlengingunni á ríkissjóð eru óviss.
Sérstakur barnabótaauki: Kostnaður ríkissjóðs af sérstökum einskiptis barnabótaauka er áætlaður um 1,62 milljarðar kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 21.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.