Samantekt um þingmál

Loftferðir

154. mál á 152. löggjafarþingi.
Innviðaráðherra.

Markmið

Að takmarka komur farþega sem eru smitaðir af COVID-19 og draga þar með úr líkum á því að smit berist inn í samfélagið um landamærin með tilheyrandi heilsufarslegum og efnahagslegum afleiðingum.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að gildistími ákvæðis til bráðabirgða í lögum um loftferðir verði framlengdur til 1. júlí 2022. Ákvæðið kveður á um heimild ráðherra, þegar hætta er á að farsóttir berist til eða frá Íslandi, og almannaheilbrigði krefst, til þess að kveða á um tímabundnar skyldur flugrekenda/umráðenda loftfara með reglugerð.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um loftferðir, nr. 60/1998.
  • Skylt mál: Loftferðir, 613. mál (umhverfis- og samgöngunefnd) á 151. þingi (18.03.2021)

Kostnaður og tekjur

Kemur ekki fram í frumvarpi.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum efnislegum breytingum á bráðabirgðaákvæðinu.


Síðast breytt 27.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.