Samantekt um þingmál

Stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki

569. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að stuðla að aukinni nýsköpun með jákvæðum áhrifum á almannahagsmuni, aukinni hagsæld og samkeppnishæfni til framtíðar.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framlengja bráðabirgðaákvæði, sem höfðu áhrif á skattfrádrátt nýsköpunarfyrirtækja árin 2020 og 2021, svo þau hafi áhrif á starfsemi þeirra á árinu 2022. Jafnframt er lagt til að lækka bæði frádráttarhlutfall og hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009.

Kostnaður og tekjur

Frumvarpið mun hafa neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs til skemmri tíma litið verði það óbreytt að lögum. Gert er ráð fyrir útgjaldaaukningu upp á 2,4 milljarða kr. árið 2023. Heildaráhrifin á fjármál ríkissjóðs ættu þó með tímanum að verða jákvæð.

Afgreiðsla

Samþykkt með þeirri breytingu að fallið var frá því að lækka frádráttarhlutfall skv. 1. gr.


Síðast breytt 26.09.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.