29.5.2019

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 29. maí

Eldhusdagsumraedur_2019Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) fara fram miðvikudaginn 29. maí 2019 og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar hefjast kl. 19:30, skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur 8 mínútur í fyrstu umferð, 5 mínútur í annarri og 5 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.

Ræðumenn flokkanna verða eftirtaldir: 
Fyrir Miðflokkinn tala Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Haraldur Benediktsson, 1. þm. Norðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Óli Björn Kárason, 10. þm. Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í annarri Guðmundur Andri Thorsson, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þeirri þriðju Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Olga Margrét Cilia, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Líneik Anna Sævarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Viðreisn tala í fyrstu umferð Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.