8.6.2022

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) 8. júní 2022

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram á Alþingi í kvöld, miðvikudaginn 8. júní, og verða sendar út í útvarpi og sjónvarpi. Umræðurnar hefjast kl. 19:35, skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Flokkur fólksins, Framsóknarflokkur, Píratar, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Viðreisn og Miðflokkurinn.

Eldhusdagur-2022-rod-raedumanna

Ræðumenn flokkanna verða eftirtaldir:

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrri umferð Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þeirri seinni Jóhann Páll Jóhannsson, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, utanríkisráðherra, í fyrri umferð og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, 6. þm. Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.
Fyrir Flokk fólksins tala Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. þm. Suðurkjördæmis, í seinni umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Ingibjörg Isaksen, 1. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og Stefán Vagn Stefánsson, 1. þm. Norðvesturkjördæmis, í þeirri seinni.

Ræðumenn Pírata eru í fyrri umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, og í seinni umferð Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Bjarni Jónsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Viðreisn tala í fyrri umferð Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Miðflokkinn tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð, og í þeirri seinni Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.