15.4.2024

Breytingar á starfsáætlun

Forseti Alþingis hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að þingfundir verði  fimmtudaginn 18. apríl og föstudaginn 19. apríl en samkvæmt starfsáætlun áttu báðir dagarnir að vera nefndadagar.

Þingfundir hefjast kl. 10:30 báða dagana. Nefndir geta fundað fyrir hádegi og fram að þingfundi báða dagana.