19.3.2020

Forsætisnefnd tekur starfsáætlun Alþingis úr sambandi til og með 20. apríl

Forsætisnefnd samþykkir að taka úr sambandi starfsáætlun Alþingis fyrir 150. löggjafarþing frá og með deginum í dag að telja og til og með 20. apríl fyrst um sinn. Á þeim tíma verða eingöngu boðaðir þingfundir til að takast á við brýn mál sem tengjast COVID-19 heimsfaraldrinum. Brottfall starfsáætlunar þýðir einnig að komið getur til þingfunda á þeim tíma sem áður var reiknað með fundahléi um páska, en þá eingöngu af sömu ástæðum, þ.e. ef brýnt verður að grípa til ráðstafana vegna ástandsins og atbeina Alþingis þarf til.

Enn fremur samþykkir forsætisnefnd að hefðbundin fundaáætlun fastanefnda sé tekin úr sambandi og eingöngu verði boðað til nefndafunda í þeim nefndum sem þurfa að taka til umfjöllunar þingmál sem tengjast viðbrögðum við COVID-19 faraldrinum. Óski aðrar fastanefndir eftir sem áður eftir því að funda þarf að sækja um það sérstaklega til forstöðumanns nefndasviðs og fá fyrir því samþykki forseta.

Forsætisnefnd færir viðbragðsteymi Alþingis og starfsfólki Alþingis öllu þakkir fyrir ómetanleg störf við erfiðar aðstæður.