Nýtt fyrirkomulag á eldhúsdagsumræðum
Forseti Alþingis og formenn þingflokka hafa orðið ásáttir um að stytta eldhúsdagsumræðurnar (almennar stjórnmálaumræður).
Umræðurnar verða nú í tveimur umferðum í stað þriggja áður og jafnframt verður strax að þeim loknum sjónvarpað beint úr Alþingishúsinu umfjöllun sérfræðinga um það sem fram kemur í umræðunum. Bein sjónvarpsútsending frá eldhúsdagsumræðum hefst kl. 19:35 á morgun, miðvikudag.