13.9.2022

Setning Alþingis þriðjudaginn 13. september 2022

Alþingi verður sett í dag, þriðjudaginn 13. september, og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, predikar og biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, og séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, þjóna fyrir altari. Dómorganistinn Kári Þormar leikur á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 153. löggjafarþing. Graduale Nobili syngur við þingsetningarathöfnina, undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 15:30. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður m.a. hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2023 útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar

Kl. 13:25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13:30 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Kl. 14:05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

  • Graduale Nobili syngur Hjá lygnri móðu. Lag: Jón Ásgeirsson. Ljóð: Halldór Kiljan Laxness.
  • Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp
  • Graduale Nobili syngur Vökuró. Lag: Jórunn Viðar. Útsetning: Þorvaldur Örn Davíðsson. Ljóð: Jakobína Sigurðardóttir.
  • Forseti Alþingis flytur minningarorð um látna þingmenn
  • Graduale Nobili syngur Hvíld. Lag: Hugi Guðmundsson. Ljóð: Snorri Hjartarson.
  • Forseti Alþingis stýrir þingfundi, býður þingmenn velkomna og flytur ávarp.
  • Kl. 14:45 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 15:30.

Framhald þingsetningarfundar

Kl. 15:30 Útbýting fjárlagafrumvarps 2023, tilkynningar og hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 15:50 Fundi slitið.

Hljóðútsending verður frá Dómkirkjunni og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður á Rás 1 frá messu og þingsetningu.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 14. september kl. 19:35.
Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2023 fimmtudaginn 15. september.

Althingissetn2021-71


Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur 152. löggjafarþing 23. nóvember 2021. 
© Ljósmynd / Kristján Maack