15.2.2024

Þingfundur eftir hádegi fimmtudaginn 15. febrúar

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis var fimmtudagurinn 15. febrúar nefndadagur. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að halda þingfund eftir hádegi og hefst hann klukkan 13:30. Nefndir munu funda fyrir hádegi.
Á dagskrá þingfundarins er eitt mál; frumvarp um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.