Þingskjölum útbýtt á vef Alþingis mánudaginn 15. mars
Eftirfarandi þingskjölum var útbýtt á vef Alþingis mánudaginn 15. mars:
- Mat á því hvernig megi lágmarka kostnað sjúklinga vegna langvinnra og lífshættulegra sjúkdóma – skýrsla heilbrigðisráðherra, þingskjal 998.
- Breyting á ýmsum lögum er varða úrskurðaraðila á sviði neytendamála (einföldun úrskurðarnefnda) – frumvarp eftir 2. umræðu, þingskjal 1023.
- Útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísanir, dvalar- og atvinnuleyfi) – stjórnarfrumvarp dómsmálaráðherra, þingskjal 1029.
- Félög til almannaheilla – stjórnarfrumvarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þingskjal 1030.
- Tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi (tilgreining kostnaðarliða, eftirlit o.fl.) – stjórnarfrumvarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þingskjal 1031.
- Brottfall laga um vísitölu byggingarkostnaðar – stjórnarfrumvarp forsætisráðherra, þingskjal 1032.