16.12.2022

Tölfræði 153. löggjafarþings, fram að jólahléi

Þingfundum 153. löggjafarþings var frestað 16. desember 2022. Þingið var að störfum frá 13. september til 16. desember 2022.

Þingfundir voru samtals 52 og stóðu í tæpar 296 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 35 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 14 klst. og 35 mín. Lengsta umræðan var um fjárlög 2023 en hún stóð samtals í 62 klst. og 9 mínútur.

Þingfundadagar voru alls 46.

Af 150 frumvörpum urðu alls 26 að lögum og 124 voru óútrædd. Af 121 þingsályktunartillögu voru sex samþykktar og 115 tillögur voru óútræddar.

Sex skriflegar skýrslur voru lagðar fram. Tíu beiðnir um skýrslur komu fram, þar af níu til ráðherra og ein til ríkisendurskoðanda. Þrjár munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 298. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 29 og var tólf svarað. 269 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 127 þeirra svarað, 142 biðu svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 587 og tala þingskjala var 867.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 131.

Sérstakar umræður voru 17.

Samtals höfðu verið haldnir 207 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 16. desember.